392.færsla.aðrar víddir
Ég er mjög ginnkeypt fyrir hugmyndum um hliðstæða heima í öðrum víddum. Ég er alltaf að lenda í öðrum víddum. Eins og í dag. Þá fór ég í fyrsta skipti inn á Árnastofnun. Það er augljóslega önnur vídd. Alveg eins og þriðja og fjórða hæðin, bara allt öðruvísi.
Lenti líka í þessu þegar ég viltist á leiðinni heim úr skólanum í Madrid. Vissi alveg að ég var rétt hjá heima hjá mér, en var samt í öðrum heimi.
Annars sá ég hluta af athyglisverðri sjónvarpsmynd í gær. Fjallaði um mann sem var sonur guðs. Frelsarinn endurborinn eða svoleiðis. Þá fór ég að hugsa, gæti það ekki verið að ég sé lausnarinn endurfæddur? Ég held það geti verið. Reyndar er ég trúlaus en það er aukatriði. Það er náttla alveg rökrétt að það sé kona í þetta skiptið, til að hafa jöfn kynjahlutföll. Ég sé þetta alveg fyrir mér. Þannig að ef ég fæ allt í einu köllunina þá get ég sagt við ykkur I told you so.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli