mánudagur, september 26, 2005

394.færsla.fangi.

Fangelsið er staðsett nálægt miðbæ borgarinnar. Byggingin er rammgerð og dýki umlykur það.
Fangarnir eru margskonar en stór hluti þeirra eru samviskufangar. Hver um sig fær einstaklingsbás. Rimlar skilja á milli þeirra. Vistaverurnar eru ekki beinlínis fráhrindandi þó þær séu kuldalegar.
Ummæli fanga:
"Það sem mér fannst verst var þögnin, þessi skelfilega allt um lykjandi þögn"
"...mér var ekki kallt þannig séð, en einhvern vegin losnaði ég aldrei við hrollinn á meðan ég var þarna inni"
"Verðirnir ganga rúnt nokkrum sinnum á vakt. Horfa yfir svæðið. Gá hvort maður sé nokkuð að gera neitt af sér. Þá er eins gott fyrir mann að fela kókið maður. Ég var einu sinni gripinn...það var ekki skemmtileg lífsreynsla"

Losna ég nokkurn tíman út af þjóðarbókhlöðunni?

Engin ummæli: