399.færsla.Gábbulegt
Það má deila um það hversu gáfulegt það hafi verið að teikna risastórt tattú á handlegginn á sér með "permanent" merkipenna. Þetta fer ekkert af.
Það var líka mjög gáfulegt hvernig mér tókst að verða mér út um meiðsli á laugardaginn. Gekk á dyrakamar og marðist á mjöðminni. Ég sem er svo bólstruð þar. Svo meiddi ég mig þegar ég var að klæða mig úr skónum. Á fingri. Það blæddi.
Mömmu fannst ég ægilega fín í gervi sjúsk rokkara. Í rifnum bol, með túperað hár, rauðan varalit og ælæner niður á kinnar. Hún sagði að ég ætti eiginlega bara alltaf að vera svona.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli