þriðjudagur, október 18, 2005

400.færsla.Baslarinn

Dreymdi í nótt að ég væri að taka þátt í Piparsveininum. Það gekk nú ekki alveg nógu vel, ég hafði verið rekin í burtu, en einhverra hluta vegna fékk ég að koma aftur nokkrum dögum seinna. Það var nú samt eitthvað chemestry milli mín og Baslaranns. En svo komu amma hans og afi í heimsókn, og hundsuðu mig alveg, en kysstu allar hinar! Svo kom Ása í heimsókn og við kjöftuðum svo mikið að ég missti af einhverri ferð sem ég átti að fara í með gaurnum og hinum gellunum. Mjög dramatískt, en raunverulegt, allt saman.

Nú. Ef við yfirfærum þetta á raunveruleikan þá segir þessi draumur okkur að mér finnist mér ekki ganga alveg nógu vel í "the love-life" (vá, stórar fréttir það). Kemst aldrei lengra en á eitthvað hössl stig af því að ömmu og afa gauranna líkar ekki við mig, og svo fer þetta endanlega í klessu af því að Ása talar of mikið. HAHAHAHA.

400 færslur. Vó.

Engin ummæli: