407.færsla.tapað sér í gleðinni
Þessi helgi var quite viðburðarík. 2 matarboð, vísindaferð, karókí, barnaafmæli og kaffihúsaferð. Allt mjög skemmtilegt, en að öðrum atburðum ólöstuðum stendur klósettviðreynslan sem ég lenti í óhikað upp úr. Sirkabát 40 ára kona hreifst mjög af mér, svo mjög að hún varð bara að kyssa mig á kinnina en það var greinilega ekki nóg heldur sá hún sig knúna til þess að grípa um brjóstin á mér, segja mér að ég væri sexy og svo endaði hún á því að stinga nefinu milli brjóstanna á mér kyssa á mér bringuna. Á þessum tímapunkti gat ég með engu móti haldið hlátrinum lengur í mér og emjaði af hlátri. Reyndar er það ekki satt að hún hafi endað á þessu, því stuttu seinna fann hún mig á dansgólfinu og vildi þá ólm bjóða mér í drykk á barnum. Undarlegt að í þessi fáu skipti sem konur hafa farið á fjörurnar við mig hafa það alltaf verið eldri konur. Ganga mjög beint til verks, verð ég að segja.
En úff. Ég er sko ekki búin að fara eftir átaksmatseðlinum um þessa helgi. Og skrópaði í tímann. Hugsa að ég verði að fara í fjórfaldan tíma á morgun til að bæta fyrir syndir helgarinnar. En það var þess virði:) Þegar öllu er á botninn hvolft þá er maður bara ungur einu sinni, þannig að það er eins gott að nýta tímann núna í sukk og svínarí. Annars endar maður kannski bara fertugur inn á Celtic að kyssa brjóstin á einhverjum helmingi yngri og af sama kyni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli