406.færsla.
Við Ása byrjuðum á bráluðu átaksnámskeiði í gær. Ég sver það. Eróbikkkennarinn reyndi að drepa mig. Var sannfærð um að hausinn á mér væri ekki nema hársbreidd frá því að springa af áreinslu. Leit í spegil og komst að raun um að það væri líkast til rétt, allavega var andlitið rauðglóandi og þrútið. Þarna var tíminn bara hálfnaður. Svo fékk maður matardagbók þar sem gert er ráð fyrir því að máltíðirnar samanstandi af einhverju álíka seðjandi og hálfri gúrkusneið og 1/7 tómat. Bíðiði bara, eftir níu vikur munuð þið sjá nýjar manneskjur. Nafninu mínu verður breytt úr Cliff yfir í Slim Jim.
Eftir leikfimina fór ég með tveimur systkina minna í bíó á the legend of zorro. Ég valdi myndina he...he. Til að byrja með hugsaði ég bara "ó guð", þetta var í nákvæmlega sama gæðaflokki og suðuramerísku sápuóperurnar sem voru sýndar um miðjan dag á Spáni. En svo skánaði þetta allt saman og myndin varð mjög fyndin á köflum, milli sverðaglamurs og hetjudáða. Svo var meira að segja töluð smá spænska í myndinni. Jess.
Eftir öll þessi ósköp var ég svo upptjúnnuð að ég gat bara alls ekki sofnað í gærkveldi. Ég var andvaka heila nótt. Venjulega sofna ég á endanum, en ekki í þetta skiptið. Er samt furðu hress í dag.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli