miðvikudagur, nóvember 23, 2005

414.færsla.leys

Ég er að drepast úr framtaksleysi. Peningaleysi, vitleysi og allsleysi. Eina leysið sem hrjáir mig ekki er þyngdarleysi.

Eftir nákvæmlega 2 mánuði verð ég 25 ára. Ég neita algjörlega að halda dannað kvöldboð með ostum á lekkerum bökkum og ræða bara barneignir og hjónabönd. Vil ekki vera kelling fyrir aldur fram. Andskotinn hafi það. Ætla ALDREI að vera kelling. Enda hef ég engar forsendur til að haga mér kellingalega. Er barnlaus og kallslaus, bý heima hjá mömmu og pabba, bíllaus og peningalaus. Á ekkert í búið. Geri ekkert annað við frítíma minn en að djamma og horfa á raunveruleikasjónvarpsþætti. Tala eins og þrettán ára stelpa á gelgjunni sem heldur að hún verði kúl ef hún slettir bara nógu andskoti mikið. Þannig að ég held að það sé nær lagi að ég haldi bara 25 ára barna afmæli, í samræmi við þroska minn og þjóðfélagsstatus. Súkkulaðikökur og afmælishattar. Kannski með öl í stað mjólkur, en þó allendis óvíst.

Annars er engin ástæða til að ákveða þetta strax... það er LANGT LANGT í það að ég verði svona gömul.
Bæ.

Engin ummæli: