miðvikudagur, nóvember 23, 2005

413.færsla.Ráðgátan í Árnagarði.

Fyrir nokkru kíkti ég í hólfið mitt í Árna og sá að það var troðfullt. Kom það mér mjög á óvart og óttaðist ég að "nemendurnir" hefðu farið hamförum í verkefnavinnu og skilað 20 blaðsíðna ritgerð hver. Svo reyndist nú ekki vera (sem betur fer) en hins vegar hafði einhver sett 8 stykki af símaskrá háskólans í hólfið mitt. Hvað á ég að gera við 8 stykki af símaskrá háskólans? Er þetta eitthvað djók? Á ég að útbýta þessu til fólks?
Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur, en ég veit bara ekki í hverju hann liggur eða hvern ég á að láta vita af þessum mistökum.

Svo var ég að gera mér grein fyrir svolitlu svakalegu. Ég verð (held ég) dæmd í kennslukönnuninni.............vil ekki vita hvað kemur út úr því. Gæti reynt að koma með feita súkkulaðiköku í síðasta verkefnatímann til að reyna að kaupa jákvæðari umsagnir. Það er reyndar frekar seint í rassinn gripið því næsti (og seinasti) verkefnatíminn er ekki fyrr en á mánudaginn, og þá verða kannski flestir búnir að svara könnuninni (amk þessir ábyrgu sem á annað borð mæta í tímann).

En já. Nú þarf maður víst að fara að standa sig sem meistaranemi. Hrista eina eða tvær massaritgerðir fram úr erminni og læra eins og það sé enginn morgundagur. Nú dugar ekki að tapa sér í gleðinni og djamma bara. Nei.

Engin ummæli: