miðvikudagur, nóvember 30, 2005

418.slef

Ég er mjög ánægð með að systir mín skuli hafa valið sér veiðimannskærasta. Búinn að redda rjúpunum. Þetta verða góð jól. Bragðlaukarnir og maginn engjast af gleði yfir tilhugsuninni. Mmmm og afgangarnir í hádeginu á jóladag. Ég ætla sko að éta yfir mig. Mmmm. Og hamborgarahryggur á gamlárs, namm. Ég er nefla ekki rassgat hrifin af kalkún. Ágætt svo sem, eins og kjúklingur, en ekki jólamatur fyrir fimm aura!

Ég hlakka til jólanna! Það er ekkert betra en að liggja uppi í rúmi og lesa bók við kertaljós, maula laufabrauð og drekka jólaöl, eða kók eða appelsín í glerflösku. Fá sér svo einn (eða sjö) konfektmola á eftir. Gavöð. Ég elska jólin! Og rjúpur.

Engin ummæli: