419.bloggað frá Árnastofnun
Dagurinn í gær var fjölbreyttur.
Hófst á Þjóðó.
Svo skrapp ég í Smáralind og rakst þar á systur mína. Við vorum ógeðslega kúl, í eins peysum, eins og góðum systrum sæmir.
Síðan fór ég á ballettsýningu hjá litlu frænku minni. Átti bágt með mig að hlýða ekki þegar kennarinn sagði "ooog þriðja pósisjón, og demiplíei". Ég brosti eins og stolt móðir og starði stíft á litlufrænku eins og hún væri ein á dansgólfinu. Mikið var hún sæt.
Svo var það feiklimin og loks fór ég á Megasukk tónleika með Heru sem upphitun. Hera var barasta fyndin, spilaði bara lög sem eru ekki lög og dónaleg lög um víbradora og fleira í þeim dúr.
Núna sit ég á lesstofunni á Árnastofnun með ómetanlegt aldagamalt handrit mér við hlið. Samstúdínur mínar sem sitja hérna með mér horfa á mig stórum augum þegar ég hamra á lyklaborðið og reyna að átta sig á því hvernig í ósköpunum ég geti skrifað svona mikið í verkefninu. Það sem þær vita ekki er að ég er bara að blogga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli