laugardagur, desember 17, 2005

428. færsla. Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna

Herbergið mitt er ruslahaugssvínastía. Föt, glös, skóladót, tómar plastflöskur, drasl og meira drasl. 17. desember er að kvöldi kominn. Ég á eftir að klára tvær ritgerðir. Eða - öllu heldur klára eina og byrja á annarri. Kaupa “eina eða tvær” jólagjafir. Gera jólahreingerninguna. Djamma til að fagna próflokum. Það er auðvelt að djamma til að fagna próflokum þegar maður tók engin próf. Það er svona eins og að vakna þunnur á sunnudegi þó maður hafi ekkert drukkið kvöldið áður. Nema ánægjulegra. Miklu.

Hvernig kemst ég inn, þegar allt er orðið hljótt? Vera með um sinn, að djamma. Fram á nótt.

Engin ummæli: