sunnudagur, desember 18, 2005

429. Er það minn eða þinn sjóhattur?

Hér með skal það kunngjört: Ég hef ákveðið að flytja úr foreldrahúsum (aftur)!!

Við Aubbið hér til hliðar munum því bætast í hóp sambýlinga. Vúhú. Ég er rosa spennt. Vó. God. Vúhú! Raunar búum við officially ekki saman þar sem við leigjum bara sitthvort herbergið en deilum eldhúsi, baði og gangi. Þannig að ef allt fer á versta veg og við Aubbið fáum ógeð á hvor annarri getum við alltaf bara lokað okkur af inni á herbergi og takmarkað samskiptin við misvinsamleg skilaboð á eldhúsborðinu.

Þar fyrir utan efast ég stórlega um að við fáum ógeð á hvor annarri, fyrst það hefur ekki gerst hingað til. Vil minna á að við höfum áður búið saman, á Spáni, þar sem Auður svaf á tímabili á dýnu inni í mínu herbergi, þó hún hefði sitt eigið herbergi, bara til að við gætum talað aðeins lengur saman á kvöldin, ekki nóg að eyða öllum vökustundum saman, heldur fannst okkur betra að bæta nóttunum við. Ég segi ekki að það hafi ekki hrikt í stoðum vinskapar okkar allra sem bjuggum saman á spáni eftir Torre, en við verðum að taka það með í reikninginn að við bjuggum á tímabili 7 manns í tveimur rúmmum, með breskum dópistum og tugthúslimum og ketti í kakkalakkabæli.
Svo höfum við náttúrulega tvívegis unnið saman, á sömu vöktum, sem gerði það að verkum að við vorum saman í vinnunni, og saman í frítímanum, fyrst við vorum báðar í fríi.

En sumsé. Húsnæðið hefur kosti og galla. Gallar eru lítið herbergi, og engin stofa. Kostir eru FOKKINGS frábær staðsetning: á milli háskólans og miðbæjar!!!! Gæti ekki mögulega verið betra. Verðið er gott. Og sambýlingurinn er frábær. Vúhú.

Engin ummæli: