432.færsla.milli hjóla og ný hárs
No, no es amor lo que tú sientes será una obsesion.
Ay amor, fue una tortura perderte.
Malo malo malo eres no se dana quien se quiere no, tonto tonto tonto eres...
Voy, caminando por la vida.
Alma gaf mér disk með spænskum lögum. Ég er búin að hlusta á hann "nokkrum sinnum". Nú get ég ekki sofið á næturnar því þetta hérna að ofan sönglar stanslaust fyrir eyrunum á mér.
Ég er svo utan við mig stundum. Áðan var ég búin að fara í sturtu, blása á mér hárið, slétta það, komin í sokkabuxur og var að klæða mig í pilsið, að drífa mig til að koma ekki of seint í jólaboðið, þegar mamma kemur inn í herbergið: "Þú veist að jólaboðið er Á MORGUN?" Svo hneykslast ég á Auði fyrir að fatta það að flugið sem hún er að fara í var daginn áður.
Það skrítna gerðist þessi jól að ég fékk 4 geisladiska. Ég. Veit einhver eitthvað um Hudson Wayne? Á ég að eiga eða skipta?
Svo fékk ég líka þrjár bækur sem ég er rosa ánægð með. Er búin með tvær og byrjuð á þeirri þriðju. Ég er að reyna að treina mér hana. En þær sem ég er búin með voru góðar: Úlfabróðir, spennandi og skemmtileg og sérlega vel þýdd saga!!! og Veronika ákveður að deyja eftir Coelho. Góð.
Ég svitna þegar ég hugsa um ritgerðina sem ég er ekki búin að gera en þarf að fara að skila. Sérstaklega þegar ég hugsa um samnemendur mína og þann gríðarlega mun sem mun vera á minni ritgerð og þeirra, svona ef ég miða við kynninguna sem þeir höfðu í síðasta tímanum. Mín, ef mér á annað borð tekst að skila henni, verður eins og lélegur brandari. Ég hata ritgerðir. Ojjojjoj. Þess vegna ætla ég að hætta að vera MAmma og fara að vinna á barnaheimili í Malaví, eða eitthvað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli