fimmtudagur, desember 29, 2005

433.færsla.Sparnaðarleiðir í boði Cliffar.

Dem það tókst ekki. Kláraði bókina strax. Það sama verður ekki sagt um ritgerðina.

Annars var ég að fá frábæra hugmynd. Ég ætla að giftast spanjóla. Þá er nefninlega aðal pakkadagurinn á Þrettándanum, sem þýðir það að maður getur keypt jólagjafirnar á útsölunum! Að mér skyldi ekki hafa dottið þetta í hug fyrr. Þar fyrir utan held ég að það sé miklu auðveldara að ná sér í karlfang á Spáni heldur en á Íslandi.

Segi nú bara svona. Á nefninlega bara 704 krónur. Veit ekki alveg hvernig ég á að lifa af áramótin á þeim pening.

Engin ummæli: