444.færsla. Bóndadagurinn
Í dag er aukaafmælið mitt!!! Húrra fyrir því. Rosalega sniðugt að eiga alltaf svona tvo afmælisdaga. Einn er alvöru afmælið og svo er bóndadagsafmælið (af því að ég fæddist þá) bara extra gleði, alltaf á föstudegi, og auk þess er maður ennþá einu ári yngri en á sjálfan afmælisdaginn.
Ég er svo ógeðslega þjóðleg að fæðast á bóndadaginn. Fyrsti dagur þorra og vinsælasti þorrablótsdagurinn, hvað er íslenskara en það? Þar fyrir utan er ég líka bara ýkt þjóðleg út í gegn, ég meina, er í M.A námi í íslenskri málfræði, for crying out loud. Ætti eiginlega að fara að leita mér að hávöxnum, vöðvastæltum, ljóshærðum víkingi til undaneldis til þess að við gætum ungað út erfðagölluðum erkiíslendingum. En í hvað sæki ég?-Litla dökkhærða latínógaura.....þetta er náttúrulega til skammar, ætla ég að kasta íslenska erfðaefninu mínu á glæ?
Gleðilegan bóndadag og aukafmælisdag!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli