laugardagur, janúar 21, 2006

445.færsla.

Maður ætti aldrei að fara á netið þegar maður kemur heim af djamminu!
Í fyrsta lagi er það geðveikt nördalegt og þar að auki skrifar maður alltaf eitthvað sem maður sér eftir daginn eftir.

En talandi um nördaskap. Lenti í nördakeppni í gærkvöldi, sem sagt keppni um það hver er mesta nördið. Ég veit þið trúið mér ekki, en ég beið ósigur. Ég reyndi að berjast en fljótlega drógum við Svanhvít okkur úr keppninni þegar við sáum að Helga var að rústa okkur. Helga, þú vannst réttmætan sigur: Þú ert mesta nördið! Og ég sem hafði meira að segja stuðning dómarans sjálfs til að byrja með (tilvitnun: "Neiiiii, ekki meira en Hlíf!" þegar Helga hélt því fram að hún væri mesta nördið).

Vil minna fólk á að ég er bara 24 ára. Ligga ligga lái.

Engin ummæli: