454.færsla.eins og ostur og rauðvín?
Ég er orðin gömul kona. Ég veit ekki hvað gerðist, en við það að verða 25 ára varð ég gömul kona. Örvæntingarfullur tilraunir mínar til þess að halda í æskublómann, eins og að klæðast ósiðsamlega stuttu gallapilsi og strigaskóm á djamminu, fara fyrir lítið. Ég er gömul. Hér eru sönnunargögnin:
a) Í annarri hvorri setningu nota ég annað hvort orðið huggulegt eða hræbillegt, nema svo vel vilji til að ég geti notað bæði orðin í sömu setningunni.
b) Mér finnst ljómandi fínt að fara heim af djamminu klukkan hálf þrjú. Bara ægilega huggulegt.
c) Hlýt að gefa frá mér gamalmennalykt eða eitthvað, allavega hættu andskotans dyraverðirnir eins og hendi væri veifað að spyrja mig um skilríki um leið og ég varð 25. Hvað er málið með það? Spurðu mig ALLTAF þegar ég vildi ekki að þeir spyrðu og svo núna þegar ég vil að þeir spyrji mig þá dettur þeim það ekki í hug! Jafnvel þó ég sé í stuttu gallapilsi og strigaskóm eins og versta gelgja.
d) Ég er farin að hafa gaman af fjölskylduboðum.
Já krakkar mínir. Þetta er ógnvekjandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli