fimmtudagur, febrúar 09, 2006

453.færsla.Hættur í nágrenni Hlífar.

Í gær var ég í strætó sem keyrði fram hjá tjörninnni. Þar sá ég all stóran hóp barna að leik. Svo datt einn strákurinn í tjörnina. Alveg kylliflatur. Greyið.

Minnir mig á þegar einn ónefndur útlendingur ætlaði að labba út á ísinn á tjörninni en áttaði sig ekki á því að þetta var bara smá ísskán og steig í gegn. Sá mátti djamma fótblautur.

Tjörnin er greinilega stórhættuleg.

Engin ummæli: