456.færsla. Kvöld hinna fögru radda.
Gærkvöldið var kvöld hinna fögru radda, eins og Aubba sambó orðaði það. The Rushes héldu aftur á klakann eftir velheppnaða tónleika á Airwaves og vitaskuld fjölmenntum við stelpurnar á tónleikana. Enda erum við ekki grúppíurnar þeirra fyrir ekki neitt. Kom reyndar í ljós á þessum tónleikum að við vorum ekki einu grúppíurnar þeirra.. hmmm. En kvöldið var allavega rosagott, mjög fallegar raddir allt saman: Idir, Tenderfoot gaurinn (sem er núna í Blue Bird) og Rushes gaurinn. Tenderfoot gaurinn er náttúrulega með fallegustu rödd í geimi.
Orð kvöldsins eru: "Ég ætla aðeins að skreppa"
Núna er ég að borða Betty Crocker kökukrem upp úr dós. Þessi dós er búin að var uppistaðan í mörgum máltíðum okkar aubbu. Ekki mjög hollt. Þið verðið bara að afsaka, en þar sem ég kemst bara á netið í eldhúsinu, þá er það óhjákvæmilegt að ég ræði alltaf um mat.
Jæja, ég er að fara í sumarbústað. Það verður nú huggó.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli