457.færsla.sumarbústaður um vetur
Var að koma úr ægilega huggulegum sumarbústað. Fór sjöhundruð sinnum í pottinn (u.þ.b.) spilaði tvö skröbbl, át tvöfalda líkamsþyngd mína af mat (mj. gott), fór í tvo göngutúra um sumarbústaðabyggðina, kleif fjöll (eða...stein amk), kaus Silvíu tvisvar, argaði af gleði þegar hún vann, sá óvænta flugeldasýningu og undarlegt blikk á himninum (líkl. geimverur), kjaftaði allmikið og las fjórar blaðsíður fyrir skólann. Very indeed huggulegt dauðans, skilurðu.
Jæja. Maður verður nú stundum að taka þátt í bloggleikjum (mér finnst það gaman reyndar sko). Það var klukkað mig af ölmu (reyndar skulda ég henni annað klukk... geri það seinna).
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
-Veiðikona fyrir bar í Torremolinos (í tæpar tvær vikur...mæli ekki með því, en hafði þó sína ljósu punkta)
-Flokkstjóri í bæjarvinnunni (úff... nei)
-Aðstoðarkennari í HÍ
-Á leikskóla
Fjórar myndir sem ég get horft á aftur og aftur:
-Love actually (over and over again)
-Billy Elliot (fannst hún meira að segja rosagóð döbbuð á spænsku, og þá er mikið sagt)
-Don Juan De Marco (Johnny fokking Depp fullkomleikinn holdi klæddur)
-About a boy (ekki halda samt að ég sé með eitthvað Hugh Grant thing.. alls ekki)
Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:
-Það er gott að búa í Kópavogi.
-Campoamor 32, 1°B í Salamanca. aka. Sveitasælan (sælla minninga)
- Bruno Allyón 6 (4A) í Madrid (metro estrecho, salida: Juan de Olías)
-Eggertsgata 20, 101b
Fjórir sjónvarpsættir sem ég horfi á:
-LOST
-Desperate Houswifes
-Scrubs
-ER (en mjög sjaldan um þessar mundir)
Fjórar netsíður sem ég skoða daglega:
-regnhlif.blogspot.com (besta netsíðan skiluru)
-hi.is
-hotmail.com
-öll bloggin á bloggrúntinum mínum
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Úthlíð (var að koma heim)
- Prag
- Quaqortoq (er ekki alveg viss um stafsetninguna)
- Santiago de Compostela
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
(þetta ætti nú að vera auðvelt...)
- LAKKRÍS LAKKRÍS
- Sýrður rjómi
- Popp
- Rjúpa
Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
-Madrid
- Salamanca
-Einhverri sólarströnd
-Enn þá í huggulega sumarbústaðnum
Fjórir bloggarar semég skora á að svara sömu spurningum:
bara allir sem nenna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli