458.færlsa. tilviljunarkenndar vangaveltur við eldhúsborðið
Guð hvað sms hljóðið í símanum mínum fer í taugarnar á mér! Ég sver það, síminn hefur sjálfstæðan vilja. Í það minnsta breytti hann um sms-hljóð alveg af sjálfsdáðum. Og þó ég reyni að breyta hljóðinu til baka, þrjóskast hann við og heldur áfram þessum pyntingarhljóðum. Einu sinni fór hann líka að hringja undarlega. Ég missti af nokkrum símtölum á því tímabili, þar sem mér datt ekki í hug að svara þessari undarlegu hringingu.
Ég held ég sé að verða lasin. Er þreytt og með kvef. Kannski mér hafi orðið meint af heitapottsferðunum 700 og tilheyrandi strippli? Því miður hafa veikindi aldrei þau áhrif á mig að ég missi matarlystina. Ég trúi statt og stöðugt á það að manni batni fyrr ef maður borðar vel þegar maður er lasinn og sit því hér í eldhúsinu og treð mig út. Sem er synd og skömm, það væri þó skömminni skárra að vera lasinn ef maður vissi að maður myndi grennast á því:)
Haha. Fann fyndið blað ofan í skúffu heima hjá ma&pa um daginn. Það var skilaboð frá vesalings móður minni til okkar allra hinna, skrifuð á aðfangadagsmorgni fyrir u.þ.b 15-20 árum. Mamma var greinilega á leiðinni í vinnnuna á læknavaktinni og stóð frammi fyrir því erfiða verkefni að útdeila verkefnum á okkur börnin hennar 6, og pabba, til þess að við gætum haldið jól þegar hún væri loksins búin að vinna. Það fyrsta sem mér fannst fyndið við þetta var að efst á blaðinu stóð, stórum stöfum og með mörgum upphrópunarmerkjum: LÁTA HLÍF BORÐA!!!. Hahaha, þetta stærsta vandamál fjölskyldunnar er úr sögunni, nú þarf helst að passa upp á það að ég borði ekki allt of mikið. Pabbi fékk verkefnið "stjórna hinum" og skúra gólf. Við hin fengum eitt eða tvö verkefni hvert (ég og Anna og Siggi að skreyta jólatréð og búa til músastiga) nema vesalings Eyfi greyið, hann fékk í fyrsta lagi verkefnið "vera sætur og góður eins og alltaf" og svo svona 20 verkefni í viðbót! Greyið! Til hliðar við endalausa listann hans Eyfa hafði mamma skrifað "láta hin hjálpa". Úff ímyndið ykkur að vera sex barna móðir og þurfa að vinna á aðfangadag þurfa að skipuleggja og skipa fyrir á einu A4 blaði á eldhúsborðinu. Verst að miðinn var ekki dagsettur, það hafði verið gaman að vita hvaða ár þetta var. En það er víst ekki til siðs að dagsetja miða með skilaboðum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli