sunnudagur, febrúar 26, 2006

460.færsla. úff

Ég sver það. Þessi helgi gufaði upp. Gerði nákvæmlega ekkert nema djamma og sofa, án gríns. Í gærkvöldi þurfti maður sko að fagna fæðingu 3 fagurra BA-rna, sem útheimti heilmikið úthald. Mjög gaman. Spurningakeppni penthás-tríósins var snilldin ein: "Hver þáði laun fyrir að klæða sig í skólabúning og standa á götuhorni?" "Hver er útlendingaskaffari hópsins?" "Hver er brúnkukrems kóngur hópsins?". Þjóðverjinn sem dansaði af mikilli innlifun einn uppi á borði á Celtic var líka mjög góð skemmtun.

En vaya que mierda. Er með rosa samvitzkubit yfir því að vera búin að eyða heilli helgi í djamm og svefn. Aaaaansans vandræði! Úúúúffffff. Que dios me ayude! Og ég hef ekkert sjónvarp því aubba er ekki heima og sjónvarpsdrusludraslið mitt er ónýtt. Og það er svooo mikið drasl í herberginu mínu að ég get ekki hugsað mér að vera inni í því. Æ mig auma.

Engin ummæli: