461.færsla. Que me muero de sueño
Ég er alveg að sofna sko. Ég nenni bara ekki að fara að sofa. Ég veit ekki hvað kom yfir mig en ég er búin að þrífa og þrífa eldhúsið tímunum saman eins og ég fái borgað fyrir það. Svona til að gefa dæmi þá eyddi ég örugglega 20 mínútum í það að skrúbba ristavélina (nei... þetta kallast EKKI brauðrist í mínum munni), og komst að því að hún er alls ekki gul á litinn heldur hvít, mér til mikillar undrunar.
Namm fékk baunasúpu hjá ma&pa í dag. Ég elska saltkjöt og baunir. Svo gott. Fékk líka ekkert svoleiðis í fyrra þar sem ég var að dandalast á Spáni. Baunasúpan minnti mig samt svolítið á baunasúpuna sem við fengum í finnska matarboðinu hjá Hel&co. Hún var græn. Undarlegt hvernig mér tekst að láta allan andskotann minna mig á Spán... meira að segja þjóðlega íslenska rétti.
Úff. Ég er svo skemmtileg að ég svæfi næstum sjálfa mig úr leiðindum. A la cama, tonta!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli