fimmtudagur, ágúst 31, 2006

555.færsla. Magnað?

Til hamingju Ísland, við gátum þetta. Erum búin að sýna það og sanna, enn einu sinni, að við erum best! miðað við höfðatölu. Ísland þokkalega rústaði rockstar með þjóðarátaki sínu. Eini gallin, sem við íslendingar nennum nú samt ekkert að hafa of miklar áhyggjur af, er sá að þetta er hvorki keppni milli landa né keppni í að kjósa. Ég eiginlega skammaðist mín þegar ég heyrði úrslitin. Magni fékk ekki flest atkvæði vegna þess að hann hefði staðið sig best eða ætti flesta aðdáendur. Magni fékk flest atkvæði vegna þess að heil þjóð (þó lítil sé) tók sig saman um að kjósa hann, löngu áður en hún vissi einu sinni hvernig hann myndi standa sig. Hefði ekki verið skemmtilegra fyrir Magna að vera kosinn af því að fólki fannst hann syngja vel? Sem betur fer flutti hann lagið vel. Annars væri ég með hauspoka núna.

Engin ummæli: