560.faersla. sól sól skín á mig
Ó my lordy.
Var á ströndinni og vard vitni ad aesispennandi slagsmálum. Thrjár kínverskar nuddkonur slógust med kjafti og klóm. Hélt fyrst ad thaer vaeru bara í saklausum gamnislag, en sá thá ad vördurinn var búinn ad slást í leikinn og hélt annarri uppi um mittid medan hún badadi út öllum öngum og hinar héldu slagnum ótraudar áfram. Thessi spriklandi endadi svo á thví ad sparka sandi framan í adra ádur en verdinum tókst ad skakka leikinn. Thaer héldu samt áfram ad aepa eitthvad reidar á kínversku. Verdinum virtist hreint ekki finnast thetta neitt leidinlegt... honum fannst hann líka greinilega vera svolítid mikill madur svona eftir á, ad hafa rádid vid thrjár reidar kínakonur.
Annars er thessi dýnuvordur sérlega gladlyndur... og vill greinilega dreifa gledinni, af tví ad alltaf thegar hann labbadi fram hjá mér sofandi í sakleysi mínu á bekknum kitladi hann mig undir iljarnar eda undir hokuna. Er búin ad vera ad hlaeja ad thessu med sjálfri mér, ALDREI myndi thetta teljast edlilegt háttalag á íslandi... fólk myndi orugglega kaera hann fyrir áreiti eda eitthvad.
Frá thví ég lét heyra í mér sídast hefur margt gerst. Til daemis lagdi ég mig í svakalega lífshaettu í rennibrautagardinum og kom heim slösud á öxl (med skrámu). Thetta er nú bara ekki fyndid, thetta eru stórhaettulegar vatnsrennibrautir. Til daemis thessi tharna thar sem madur actually fellur í frjálsu falli, madur lyftist frá brautinni og svífur í lausu lofti nidur. Ég gaf víst frá mér öskur ársins, ef ekki aldrinnar, samkvaemti mági mínum í thessari braut.
Svo á laugardaginn var agalegt systradjamm planad. Mamma passa. Thessu djammi verdur ekki lýst ödruvísi en: "Theim var ekki aetlad ad djamma". Í stuttu máli sagt thá komumst vid aldrei lengra en á bar í hverfinu (=gamalmenna sumarbústadahverfi) thar sem fullur baski sagdi okkur í óspurdum fréttum ad konan hans hefdi farid frá honum fyrir besta vin sinn, skilid börnin thrjú eftir hjá honum, 10 ára, 5 ára og 5 mánada! Vid gátum sem sagt ekki fengid leigubíl, thví símkerfid var eitthvad gallad og thad var bara ekki haegt ad hringja á leigubíl (hvorugur gemsinn virkadi, tíkallasíminn tók ekki neinn pening og síminn á barnum virkadi ekki heldur). Thannig ad vid löbbudum aftur heim....
En svo fórum vid aftur á djammid á sunnudegi...sem var svona frekar döll... en vid skemmtum okkur samt konunglega og vorum flindbullar. Vorum ásóttar af hópi fullra sveittra breta sem töludu algjörlega óskiljanlega og af unglinspiltum. Thad ótrúlegasta, hápunktur ferdarinnar, var samt thegar ég rakst á hann Gary ofurhomma sem vid thekktum í Torremolinos um árid! Thvílík tilviljun, ég aetladi ekki ad trúa mínum eigin augum.
Í gaer var sem sagt dagur daudans, ég hélt ég myndi látast kvalafullum dauddaga úr thynnku. En sjórinn bjargadi mér. Maeli med thví, hann hefur deyfandi áhrif á thynnku.
En jaeja nú má ég ekki vera ad thessu hangsi. Verd ad halda áfram ad grilla mig. Betur má ef duga skal, hef verid allt of dugleg ad bera á mig sólarvörn af ótta vid sólarexem... en núna er tíminn ad renna út. Verd líka ad gjöra svo vel ad drífa mig í verslunarmidstödina (aka himnaríki á jörd), er bara búin ad eyda klukkutíma thar (=besti klukkutími aevi minnar) og kaupa thrennar buxur, bol og peysu. Ég verd ad kaupa meira!! Húrra fyrir kreditkortinu!
Besos y abrazos,
vuelvo muy pronto
Jlif
Engin ummæli:
Skrifa ummæli