561.færsla.
Ég er komin heim.
Mig vantar sokkabönd.
Mig langar að skrifa eitthvað um ferðina, en ég get það bara ekki, ég er komin með bloggælu upp í háls eftir að hafa lesið upp blogg síðustu tveggja vikna. Andskoti blogguðuði mikið.
Núna þarf ég að vinna upp síðustu tvær vikur í skólanum. Get bara ekki byrjað af því að þetta vex mér svo í augum. Þarf líka að fara yfir tvö verkefni í aðstoðarkennslunni. Mér til þvílíkrar hamingju eru samt ekki nema rúmlega 30 stykki af hverju, miðað við þessi 50-60 sem voru í fyrra. Það kallar maður bara lúksus.
En það eina sem mig langar að gera núna er að djamma. God hvað mig langar mikið að djamma. Kannski ef ég verð ógjó dugleg, geri verkefnið sem ég átti að skila í fyrradag og byrja að fara yfir verkefni get ég leyft mér að fara út á lífið í kvöld eða annað kvöld. Spurning.
Á Spáni gerðist ég svo fræg að keyra bíl í fyrsta skipti í útlöndum. Og gekk bara svona ljómandi vel... þangað til ég klessti hann. Bölvuð veri bílastæðahús á Spáni. Fjandskotinn. Var svosem ekkert mjög alvarlegt, og við þurftum ekki að borga. En samt.
Jæja. Ætla að hlaupa heim og taka úr þvottavél áður en ég byrja á öllu þessu dóti. Er sko á þjóðó ef einhvern langar að koma.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli