þriðjudagur, október 03, 2006

568.færsla. Svei þér forni fjandi

Er ég gekk fram hjá hinni virtu menntastofnun, Menntaskólanum, blasti við mér ófögur sjón. Einhverjir óforskammaði verslingsribbaldar höfðu úðað ljóta stafi á hið fornfræga tún: VÍ-MR. Durtar og dusilmenni! Vandalistar og grasmorðingjar! Ég spyr, verslingur góður, berið þér enga virðingu fyrir sögu þjóðar yðar? Hvernig haldið þér að Jóni Sigurðssyni forseta og félögum hans á þjóðfundinum yrði um ef þeir litu af himnum ofan og sæju þar forsmáðan staðinn sem þeir hugdjarfir risu úr sætum og mæltu: „Vér mótmælum allir!“? Myndi herra forseti verða stoltur af þjóð sinni. Nei – Vér mótmælum allir þessum ósóma.

Auk þess veit hver heilvita maður að þetta heitir MR-ví dagurinn. Nema hvað.

Fyrst kemur MR, MR, MR, svo kemur MR, MR, MR síðan kemur MR, MR, MR, ENDALAUST!!!!! Vúúúú. Hverjir eru bestir? MR!

Engin ummæli: