sunnudagur, október 22, 2006

577.færsla. Shameless

Bestu sjónvarpsþættir ever eru Shameless. Þeir voru sýndir einhvern tíman í fyrra held ég, á rúv, en ég held að þeir hafi farið fram hjá mörgum. Ég missti til dæmis af hálfri seríunni, en þeir eru SNILLD. Aubbið var svo sniðugt að kaupa báðar seríurnar sem eru komnar út á DVD þannig að við erum búnar að liggja yfir þessu. Þetta eru breskir þættir um lágstéttarfjölskyldu þar sem pabbinn er alltaf fullur, mamman stakk af og gerðist lesbía og elsta systirin þarf að hugsa um yngri systkini sín 5. Bestu þættir sem ég hef séð, ég er að segja ykkur það. Karakterarnir eru snilld. Snilld. Vona að það komi meira...

Fór í rosa skemmtilega útskriftarveislu úti á landi í gær. Ég held þetta hafi verið fallegasta kvöld í geimi. Þegar við keyrðum þangað var sólin að setjast og litadýrðin var stórfengleg. Á leiðinni heim var hins vegar niðamyrkur og stjörnubjart og stærstu norðurljós í heimi lituðu himininn. Það er eitthvað að mér... mér finnst bara ekkert flottara en flottur himinn, tek alltaf andköf og endurtek 100 sinnum “jiiii hvað þetta er fallegt”. Svo fór ég í bæinn og reifst við Aubbu um það hvor okkar væri dómharðari. Eða “dæmigjarnari” eins og Aubba kallaði það. Mér leiddist sem sagt ekki í gær. Húrra fyrir því!

But all of them to a man know, first and foremost, one of the most vital necessities in this life, is to know how to throw a party! Scatter!

Engin ummæli: