569.færlsa. Það er bað
Vitiði það, ég elska að fara í bað. Þess vegna fer ég oft í bað þegar ég fer heim til ma og pa. Kem einu sinni í viku, borða og fer í bað. Svo skutlar pa mér heim. Mmmm svo gott. Mér líður svo vel.
Ég hlakka svolítið til að vera heima hjá ma og pa um jólin. Ég ætla að fara á þorlák og gista svo bara þar, kannski alveg fram yfir áramót. Stundum þá langar mig bara ekkert að vera fullorðin og langar bara að búa heima hjá mömmu og pabba af því að þau eru svo góð við mig. En mig langar það bara stundum sko. Maður er orðinn svo fjári sjálfstæður.
En ég hlakka til jólanna. Ég elska jólin. Svo mikið. Bækur og jólaöl og laufabrauð og smákökur og konfekt og kerti og greniilmur (tvö i í röð?) og freyðibað og rjúpur og ís og lax og hangikjöt og spil og bækur og jólaskraut og.
Þarf bara að passa mig að hugsa ekki um lokaverkefnin og hluti sem pirra mig, þá er lífið fullkomið. Nokkurn vegin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli