mánudagur, nóvember 27, 2006

570.færsla. á jólaspítti

Ég sver það. Þvílíkt og annað eins hefur aldrei heyrst.
Ég er búin að kaupa 13 jólagjafir. Og það er ekki einu sinni kominn desember. Þá á ég bara eftir að kaupa 5 stykki og ég er þegar búin að ákveða 3 þeirra. Þar af leiðandi eru bara tvær gjafir sem eru eitthvað vesen. Og svo á ég reyndar líka eftir að finna mér jólaföt og jólaskó svo ég fari nú ekki í jólaköttinn (vantar þetta bráðnauðsynlega sko, í alvörunni). Svo er ég líka búin að kaupa 5 rúllur af jólapappír, nóg af merkispjöldum og slatta af pakkaböndum. Þetta er svakalegt.

Málið er bara að skólinn er eiginlega búinn. Öll minni verkefni búin og bara lokaverkefnin eftir, en ég get eiginlega ekki byrjað á þeim fyrr en á fimmtudaginn (held ég). Þess vegna nota ég tímann til að jólast núna... og get þá verið að vinna í verkefnunum alveg til kl. 6 á aðfangadag... hehe... vonum ekki!

Úff. Ég held ég eyði rosalega miklum pening í jólagjafir. En það er í lagi af því að ég fæ peninginn fyrir aðstoðarkennsluna 1. des og hann getur bara farið allur í þetta:) Hehe. Þvílík leiðindi sem ég legg á mig til þess að geta gefið ykkur gjafir. Hehe. Neinei. Þetta er ekkert svo leiðinlegt. Bara stundum.

Engin ummæli: