583. færsla. Um ást, skít og vínber
Það var verið að bjóða mér Kama Sutra bók á tilboði, til þess að krydda ástarlífið. Þarf maður þá ekki að eiga eitthvað ástarlíf??
Ákvað að taka ekki þessu tilboði. Þessi bók myndi sjálfsagt bara gera mig grama.
Eina ástarsambandið sem ég á í um þessar mundir er platónsk ást á hjónabandssælu. Kökunni það er að segja. Svo elska ég líka frosin vínber. Vona að þið séuð ekki mikið fyrir það að lesa Freudíska merkingu úr hlutum.
Og ég á líka í leynilegu ástarsambandi við Dr. Luka. Og Zach Braff. Það mætti halda að ég hefði eitthvað thing fyrir læknum (eða læknanemum. he he he. guð. ég skít á sjálfa mig. það ætti maður ekki að gera. ég er samt sko að meina að "skjóta á e-n" í merkingunni 'að stríða e-m' en ekki 'að losa sig við hægðir á einhvern')
Ó nei. Ég greini gróteska slagsíðu á færslum síðustu daga. Ég er aftur farin að tala um skít. Varið ykkur. Þetta gæti versnað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli