584.færsla.vandræði
Ég er búin að ákveða að vera einstaklega jákvæð og bjartsýn eftir svartsýniskast síðustu vikna.
Þess vegna ætla ég ekki að fá stresskast yfir því að ég eigi eftir að fara yfir verkefnin sem ég á að skila á morgun, en lausnablaðið er annaðhvort týnt, eða ég fékk það aldrei. Úff. Ekki stressast. Jákvæð. Ég veit nú alveg hvernig réttu svörin eru. Eða svona nokkurn vegin amk. Vona ég.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli