586.færsla. stuldur
Það er svo pirrandi að vera í námskeiði þar sem margir eru að gera verkefni upp úr sömu greinunum í einu. Nú eru sem sagt 4 tímar í lokun þjóðó og einhver er búinn að stela greininni minni, sem ég er hálfnuð með að nota. Þetta er ekki gott.
Einhvern daginn ætla ég að taka upp kvartlausan dag. Einhvern tíman verður allt fyrst.
Minni á ljóðasamkeppni Mímis. Skilafresturinn rennur út á föstudaginn. Hægt er að skila á mimirinn@gmail.com eða í hólfið hjá Mími (beint fyrir ofan hólfið mitt). Undir dulnefni (og rétta nafnið í umslagi ef þið setjið þetta í hólfið). Koma svo. Til mikils að vinna. Töff dómnefnd. Ómældur heiður. Einstakt tækifæri til að skrá sig á spjöld sögunnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli