587.færsla. um týnda orku og fundnar greinar
Það var skilað greininni (nýja þolmyndin=uppáhaldið mitt)
en núna er ég svooooooo þreytt að ég veit bara ekki hvort ég lifi það af að klára verkefnið.
Muna bjartsýnina. Auðvitað geturðu þetta, Hlíf. Það er unaðsleg tilfinning að gera verkefni þegar maður er orðinn svo þreyttur að öll skilningarvit eru dofin. Þú veist vel að þú átt fullt af orku eftir, þó að þú hafir sofið illa í nótt, verið byrjuð að læra klukkan 8, mætt á þjóðó klukkan 11, í tíma klukkan 13, á fund kl 15:30, á annan fund kl. 16:30, aftur á þjóðó kl 17:30 þar sem þú ert búin að sitja síðustu tvo tímana og læra milli þess sem þú hleypur til að athuga hvort greinin sé komin inn. Fullt af orku!
P.S ég er líka búin að hanga smá á netinu. en lítið miðað við mig (gott hjá mér!)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli