miðvikudagur, desember 06, 2006

577.færsla.sú þraut er þung. ég er ekki ung.

Nokkur atriði sem mig langar að nefna.
a) Þessa dagana flýt ég um á fjólubláu kæruleysisskýi. Dagarnir hverfa óséðir og ónotaðir.
b) Heimurinn er lítill.
c) Mér til nokkurra vonbrigða kallar einhver kona sig Spinsterella á vefnum. Ok, ég hef bara notað það nafn einu sinni, en samt, mér fannst ég eiga það. Ég meina einhleyp Umbrella= Spinsterella.
d) Hvernig er eiginlega skipt um mjöðm á fólki (var að horfa á ER), þarf að taka lappirnar af...eða???
e) Ok. Kunna andar stafina, óháð því hvort þeir hafi lært þá í lifanda lífi? Er að spá í þetta með það að koma mér í samband við frummenn til að spyrja þá um orðið hvirfilbylur en ég er bara alls ekki viss um tæknilega útfærslu. Þar að auki er ég náttúrulega dauðhrædd við andaglös. Það næsta sem ég hef komist því að fara í andaglas var í einhverri skólasamkomu í 10 bekk þar sem við reyndum að fara í andatappa og andapela í stað andaglass, með litlum árangri.

titill þessarar færslu er í engu samhengi við efni hennar. ég er bara svo skáldleg, skiluru. það er ekki auðvelt að vera ég, og þjást af áunnum athyglisbresti.

Engin ummæli: