sunnudagur, desember 10, 2006

578.færsla.hjarta, spaði, tígull, laufabrauð

Í dag skárum við 180 laufabrauðskökur. Spiluðum twister. Sungum jólalög. Börnin máluðu piparkökur. Vinsælustu umræðuefnin voru Borat og stjórnmál. Seinni heimsstyrjöldin, bandarískir forsetar, kristnir og íslamskir ofsatrúarmenn og svo framvegis. Málfræði var næstum ekkert rædd, nema á heimleiðinni spurði litli frændi minn mig spjörunum úr um skyldleika indóevrópskra tungumála. Mér finnst hann eigi ekki að vita svona mikið um allt. Barnið er 14 ára en hefur í u.þ.b fimm ár verið viðræðuhæft um öll hugsanleg umræðuefni fullorðinna. Verð að muna að vera búin að rifja upp ættartré indóevrópskra tungumála áður en fjölskyldan hittist næst. Held hann sé efnilegur málfræðingur. Hann er reyndar efnilegur allt.
En allavega. Laufabrauðsskurðarmaraþonið er líklegast uppáhaldsfjölskyldusamkoman mín.
Mmm. Laufabrauð.

Engin ummæli: