582.færsla. Kjánaleg_meiðsli.is
Í gær fór ég á læknavaktina, borgaði 1700kall og fékk plástur! Húrra.
Þetta slær eiginlega út skiptið sem ég fór til læknis og hann gaf mér lyfseðil fyrir:...tattatatamm: parkódíni!!
Held ég sé að verða búin að safna upp í afsláttarkort með heimskulegum læknisferðum. Það er nú aldeilis gleðilegt, svona þegar það eru 17 dagar eftir af árinu, mun örugglega get nýtt mér þennan afslátt.
Ég fékkk sem sagt viðbjóðsstóra flís beint undir nöglina á litla fingri. Ég reyndi að taka hana úr en náði bara endanum þannig að næstum hálfs sentimetra löng flís sat föst inni í miðjum putta. Ég sá fyrir mér að það myndi bara þurfa að taka puttann af, eða að minnsta kosti nöglina og fór til læknis. Hann potaði djúpt inn í puttann á mér með, án gríns, stærstu nál sem ég hef séð (ég fór ekkert að gráta) og komst að þeirri niðurstöðu að það væri líklega engin flís í puttanum, þetta væri bara far eftir hana. Þegar hann sagði þetta hljómaði þetta mjög sennilega... og mér leið mjööög kjánlega.
En ef hann hafði rangt fyrir sér, þá þarf að taka nöglina af. Sem betur fer ekki sjálfan puttann samt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli