583.færsla. Í fréttum er þetta helst:
Búin að halda fyrirlesturinn sem ég kveið svo mikið fyrir. Gekk bara vel held ég. Reyndar finnst mér fyrirlestrar alltaf hafa gengið rosavel um leið og ég er búin með þá... þannig að ég veit ekki alveg hvernig hann gekk í raun og veru. En ég er amk ánægð.
Ég gerði mitt besta til að koma af slagsmálum á djamminu sem ég fór algjörlega óvart á í gær. Það gerði ég með því að tapa mér á einhvern lítinn heimskan ljótan dónalegan strák sem var með stæla og hótanir vegna þess að mér var hrint á hann. Ég bara gat ekki hamið mig og sagði honum allt sem mér fannst um hann (svo sem: ertu aumingi? hálfviti! o.s.frv.). Mér hefði verið sama þó hann hefði lamið mig, sem hann hefði pottþétt gert ef ég hefði ekki verið stelpa, ég bara gat ekki hamið mig. God hvað ég var pirruð. God hvað hann var ömurlega leiðinlegur hálfviti. Gott að ég er ekki strákur því ég hefði pottþétt slegist við hann.
Nú eru jólin alveg að koma. Hins vegar eru ritgerðirnar/verkefnin ekki alveg að koma saman hjá mér. Bömmer.
Bless.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli