mánudagur, desember 18, 2006

585.færsla. tannhlíf

Ég fór til tannlæknis í morgun. Í fyrsta skipti í 3 ár. Ég var ekki með neina skemmd. Jess. Hann sagði að tannhirðan væri góð hjá mér. Jess. Ég var nefnilega alltaf skömmuð þegar ég var í tannréttingunum, þannig að ég býst ennþá alltaf við skömmum þegar ég fer til tannlæknis.

Til að halda upp á þetta sit ég og ét nammi á hlöðunni.

Það er eins og mig minni að ég hafi ætlað að gera eitthvað meira en að borða nammi hérna, en ég man bara ekki alveg hvað það var. Læra kannski. Hm.

En vitiði, ég er ekki lengur regnhlíf. Núna er ég legghlíf. Brún/gylltu legghlífarnar mínar eru uppáhalds fötin mín.

Engin ummæli: