587.færsla. kærastur
Í ljósi þess hve margar úr röðum hins áður einhleypa stúlknahóps eru nú komnar með kærasta, eða amk á að deita, hef ég verið að velta þessu fyrirbrigði kærustum fyrir mér. Þetta er í raun merkilegt. Menn, sem áður tilheyrðu kynstofninum svín (einnig þekkir í daglegu tali sem hálfvitar), breytast án nokkurrar fyrirhafnar í fyrirmyndarmenn, í augum stúlknanna sem veiddu þá (í einstaka tilvikum má þó deila um hvor er bráðin). Óljóst er hvort kærastarnir breytist einnig í augum annarra kvendýra í flokknum en vísbendingar eru um að þau eigi það til að halda enn að þeir séu svín.
Ekki nóg með að kærastarnir breytist, heldur virðast þeir einnig hafa undarleg áhrif á kærusturnar. Til dæmis breytist geð þeirra, einkum djammgeð. Oft hefur það gerst að svæsnustu djammtýkur (er það ekki annars kvk-mynd djammhunds?) missi algjörlega lystina á sveittum börum og þjáist þess í stað af alvarlegu afbrigði hins þekkta video-keli-syndróms (VKS). Nokkur þyngdaraukning á sér jafnan stað samhliða VKS, bæði meðal kærasta og kærastna. VKS á háu stigi leiðir oft til sambandssjúkdómssins. Í verstu tilvikum getur sambandssjúkdómurinn valdið þeim sem þjást af honum félagslegri einangrun, þar sem eina veran sem þeir þola samvistir við eru aðrir með sama afbrigði sjúkdómsins.
Alvarlegur en algengur fylgikvilli (getur bæði gerst á fyrstu stigum sambandssjúkdómssins og þegar fólk er lengra leitt) er myndun lífræns aðskotahlutar í maga annars aðilans (oftast kvk að því er talið er). Þessu fylgja jafnan uppköst, ógleði og bakverkir. Kvillinn útheimtir einnig oft mikil fjárútlát hjá þeim pörum sem af honum þjást. Hann er þó ekki talinn lífshættulegur í flestum tilvikum.
En líkamlegar breytingar eru ekki þær einu sem verða. Málnotkun og orðaforði sambandssjúklinga breytist verulega. Orð eins og elskan mín, ástin og í svæsnustu útgáfum krúttubolla geta komist í daglegan orðaforða kærastanna, jafnvel þó þeir hafi áður fyrr aldrei lagt sér þessi orð í munn og svarið fyrir að nota þau (sannað með víðtækri rannsókn). Málfræðilega formdeildin persóna missir einn þátt hjá báðum kynjum sambandssjúklinga: persónufornafnið ég hverfur með öllu en notkun persónufornafnsins við eykst um 70%.
Hugsa sér... stór hluti vinahópsins þjáist af þessu núna í mismiklum mæli. Hræðilegt.
En þar fyrir utan, hafiði pælt í orðinu kærasti/kærasta? Þetta er bara lo. kær í efstastigi með greini. Hehe. Eins og maður myndi segja um bestu vini sína: “þetta er bestan mín og þetta er bestinn minn”.
Og þið sem eruð að hugsa um að kommenta það sem ég held þið séuð að hugsa um að kommenta, þið skuluð bara sleppa því! En þeir sem eru að hugsa eitthvað annað mega alveg kommenta sko.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli