621.færsla. kommekki
Af hverju birtast kommentin ekki? En leiðinlegt. Og mikið eru kínversku táknin og hin táknin þreytandi í kommentunum. Þarf ég að skipta um kommentakerfi? En ég vil ekki glata öllum gömlu kommentunum. Af hverju var ekki útskýrt fyrir manni að bloggið gæti haft mikil áhrif á sálarlíf manns áður en maður byrjaði á þessu? Sjáiði bara mig: í öngum mínum yfir kommentunum.
Ef ég væri ekki svona alsæl í augnablikinu þá væri þetta satt, þ.e. að ég væri í öngum mínum. En svo er ekki, ég er nefninlega alsæl sko. Af hverju, spyr glöggur lesandi sig? Jú, af því að mér finnst ég, í fyrsta skipti síðan einhvern tíman á síðustu önn, ekki vera að kafna í hlutum sem ég þarf að gera. Jú, ég á reyndar eftir að fara yfir tvo eða þrjá tugi verkefna sem ég á að skila í dag, en hvað er það á milli vina? Jú, það eru reyndar eftir eitt eða tvö próf og verkefni, en það hljómar bara eins og lautarferð í mínum eyrum.
Já, kæru lesendur, þið skuluð njóta þessa augnabliks. Aldrei þessu vant er Regnhlíf jákvæð. Er á meðan er.
Kyss kyss og útaf.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli