þriðjudagur, apríl 17, 2007

623.færsla. ... að hefnist þeim er svíkur sína huldumey

Ég veit alveg af hverju þetta er. Þetta er hefning fyrir að segja um páskana "blogger hefur reynst mér ágætlega" og segja ekkert sjöníuþrettán.
Þetta er alveg eins og þegar ég sagði "ég hef aldrei verið veik í prófi". Nokkrum dögum seinna komst ég ekki í próf vegna veikinda.

Ú. Þetta er ógeðslega spennandi. Klukkan er tvær í tíu og þá lokar Árnagarður, þar sem ég er. Ímynda mér að á slaginu komi ógeðslega ógnvekjandi vörður og reki mig út svo ég verð að reyna að skrifa eins hratt og ég get og públíséra áður en hann kemur. Voooooo, mér líður eins og þegar ég var úti á Spáni og var alltaf á netkaffihúsum. Tíminn þinn rennur út eftir 5 mínútur. Og svo kannski slökktist á manni áður en maður náði að ýta á "send" eða "publish". Og nú er klukkan tíu. O,ó. Heyri fótatakið í verðinum. Æ, nei, þetta var kona á háum hælum. Ekki vörður.
Bless.

P.S.
Guð hvað ég er þreytt.

Engin ummæli: