642.færsla. Pepino
Jæja, eftir langa ræðu um gúrkur í kommentum síðustu færslu ákvað ég bara að blogga meira um spænskar gúrkur. Hér er mynd af þeim:
Fallegar, ekki satt!

Hér læt ég fylgja með uppskrift sem ég lærði úti á Spáni.
1 spænsk gúrka
2 tómatar
Nokkrir dropar ólífuolía
Nokkrir dropar balsamikedik
smá salt og svartur pipar
Nokkrar ólífur (grænar) ef vill.
Aðferð:
Skerið gúrkuna niður í frekar litla bita.
Skerið tómatinn í álíka stóra bita.
Hellið ólífuolíu, balsamikediki, salti og pipar, og ólífum ef vill .
Blandið varlega saman.
Borðið með gaffli.
Ath. Þetta er miklu betra ef maður borðar þetta úti á Spáni. Það gera spænsku gúrkurnar og andrúmsloftið.
Á þessari síðu fann ég myndirnar og þar má lesa ýmsan fróðleik um gúrkur, t.d. um mismunandi tegundir og flokkunaraðferðir: gúrkur. Aðeins þó ef maður talar spænsku.
2 ummæli:
Af einhverjum ástæðum minnir þetta mig bara á avokadó. Svona salat, nema með avókadó í staðinn fyrir gúrku og jafnvel smá rauðlauk. Namm. Jafnvel sítrónupipar útá. mmm.
Hef samt aldrei smakkað spænskar gúrkur. Eru þær súrar? Eru þær pikkles? Eru þær bara litlar? Skil ekki. Og man ekki eftir að ítalskar gúrkur séu neitt öðruvísi en annarslenskar, bara þessar klassísku vatnsgúrkur.... Gott á lifrakæfu samt. Og ost.
ég er svöng, næstum þunn að morgni til að reyna að læra. Þyrmdi yfir mig af hungri við gúrkufærsluna hehehe. Koddu og búðu til salat handa mér.
Neinei, spænsku gúrkurnar eru ekki súrar, alveg bara venjulegar nema mér finnst þær aðeins betri. Og maður afhíðir þær vanalega.
Já, m. Gott með avakadói líka örugglega.
Eða náttúrulega með mozzarella í staðinn:)
Þetta eru svona tilbrigði við gúrkusalat, með og án gúrku:)
Þessi blanda var mjög einföld en einhvern vegin fannst mér þetta alveg þrælgott. Frískandi.
svo eru spænsku gúrkurnar líka notendavænni fyrir einhleypa.... koma í minni stærðum.
Skrifa ummæli