643.færsla. moggablogga, aftur
Ok. Aftur ætla ég að ausa úr skálum pirrings míns yfir moggabloggunum. Æ, fólk, mér finnst þið svo halló.
Gott og vel. Oft langar mann að blogga um fréttir. Það er hægt að gera jafnvel þó maður sé ekki með moggablogg. En mér finnst þetta eitthvað svo tilgerðarlegt. Stundum kíki ég á blogg við einhverjar fréttir af því að mér fannst fréttin áhugaverð og mig langar að vita hvað fólki fannst um hana en þá er yfirleitt ekkert varið í það sem fólk segir um fréttina. Lenti til dæmis á ógeðslega langri færslu hjá einhverri stelpu með myndum af henni og því sem hún hafði gert þennan daginn og rétt í bláhorninu stóð "athyglisverð frétt" eða eitthvað álíka. Veit ekki hvort það er skárra eða verra en þegar ekkert stendur í færslunni bara "ó mæ gad" eða eitthað og vísun í fréttina. Þá hefur þetta engan tilgang... annan en að auglýsa blogg manneskjunnar og plata fólk til þess að kíkja þangað inn þegar maður er að kíkja á fréttirnar. Skiljiði mig?
Ég veit þetta er ekki stórmál og ég veit að ég ætti ekki að vera að pirrast yfir þessu... og ég er reyndar ekki alveg eins pirruð og ég hljóma. Þetta er bara eitthvað svo lýsandi fyrir Íslendinga. Halda allir að þeir verði menn með mönnum bara ef þeir blogga um fréttir, sama þó það sé nákvæmlega ekkert í bloggfærslunni þeirra. Ég skal líka hundur heita ef fólk er ekki bara að reyna að veiða "hitt" á síðuna sína og í brjálaðri samkeppni við næsta mann um fjöldann.
Að þessu sögðu þá vil ég taka það fram að mér finnst ýmsir frábærir bloggarar blogga á moggablogginu. Ég hef líka oft lent á áhugaverðum ummælum fólks um fréttir, hvort sem ég er sammála þeim eða ekki. Þessi ummæli gefa oft kost á miklum og löngum umræðum/rifrildum í kommentakerfinu og það finnst mér bara gaman.
Það er bara hitt sem fer í taugarnar á mér.
Nú skal ég lofa að pirrast ekki meira á moggabloggi, enda á ég bara að sleppa því að lesa þetta ef þetta fer svona í taugarnar á mér. Það hefur alltaf verið mitt mottó í bloggheimum. Mín skoðun er sú að fólk megi skrifa það sem það vill, og ef lesendur eru ósáttir við það, þá eigi þeir bara að lesa eitthvað annað. Þá á ég samt ekki við að fólk eigi að mega skrifa hvað sem er óáreittir. T.d. finnst mér alveg í lagi að fólk mótmæli einhverjum sora sem fólk skrifar í kommentum. Þið vitið, ef einhver talaði t.d. af miklu útlendingahatri, þá finnst mér allt í lagi að fólk mótmæli. Mér finnst bara kjánalegt þegar fólk er eitthvað "ohh, svo leiðinlegt blogg... hætttu að skrifa" eða eitthvað. Svona eins og að mér finnst bloggið hennar Ellýar bæði asnó og leiðó, en ég er ekkert endilega að flíka þeirri skoðun út og suður (bara smá), heldur sleppi ég því frekar bara að lesa bloggið.
Jesús minn almáttur. Hjálpi mér allir heilagir, þvílík hringavitleysa hjá mér. Ekki lesa þetta.
Í grófum dráttum:
Finnst fólk sem bloggar um fréttir en segir ekkert um fréttina halló.
Finnst fólk sem bloggar um fréttir bara til að ná sér í umferð á síðuna sína en skrifar ekkert um fréttina halló.
Finnst samt að ég eigi ekki að vera að kvarta undan þessu því ég á því bara að sleppa því að lesa þessi blogg sem pirra mig.
Halelúja. Amen.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli