645. færsla. allt sem er rautt, rautt...
Jájá. ER það ekki?! Maður má ekki stinga nefinu í átt að sólu í tvær sekúndur og þé er maður orðinn eins og rauðglóandi eldhnöttur í framan. Ég slæ mér á lær sko.
Mér þætti líka gaman að vita í hvaða stellingum ég sef eiginlega þegar ég legg mig í hádeginu. Er brennd á innanverðum upphandleggjunum báðum og á litlum bletti á hálsinum sem er í laginu eins og skjöldur*. Það mætti segja að ég væri rauðskjöldótt.
*Þá á ég við blettinn ekki hálsinn. Ef þið viljið fræðast meira um svona tvíræðnisbrandara, þá getið þið lesið grein eftir Eyrúnu Valsdóttur í nýjasta hefti Mímis.
2 ummæli:
Noh, bara ókeypis auglýsing svona í tilefni dagsins.
Hafðu það annars gott á meðan ég er úti, vona að sólin komi nú aðeins svo að þú getir jafnað skjöldóttuna út.
hahahha. Kunnuglegt. Ég þurfti ekki einu sinni að fara út til að brenna... sól inn um glugga náði að rauðskjalda mig.
Hef aldrei áður á ævinni fagnað skýjum. Já hiti og lærdómur fara bara ekki vel saman.
Skrifa ummæli