644.færsla. sól
M. Mikið er gott í hádegismatnum að leggjast á grasið fyrir framan Árnagarð á hlýrabol, bretta upp á buxnaskálmarnar og sofna á sitt græna eyra í svolitla stund og láta sólina baka sig. Svei mér, held ég sé barast brennd eftir þennan hálftíma. Mj. gott. Verý næææs.
2 ummæli:
ég veit aldrei hvort maður á að skrifa hlýri eða hlíri. Og ég nenni aldrei að fletta því upp. Ég sökka í stafsetningu. Kjánó, ég veit.
Svo langar mig að mótmæla kommentaleysi. Viðurkenni reyndar að ég skrifa mj. ókommentavænar færslur nú orðið, en KOMM-ON hehe.
Ég skrifa hlýri hiklaust með tvöföldu, til að hann nái sko upp á báðar axlir!!
Skrifa ummæli