392.færsla.KLUKK
Það var klukkað mig.
Eg hefi klukkuð verið.
1.
Í öðrum bekk í grunnskóla varð ég í 2. sæti í lestrarkeppni. Fékk bókina dósastrákurinn í verðlaun. Nokkrum dögum seinna kom í ljós að það höfðu orðið mistök og einn strákur hafði raunverulega lesið meira en ég og átti hann því að vera í öðru sæti en ég í því þriðja. Kennarinn lagði áherslu á það að þetta breytti minni frammistöðu ekkert, og ég ætti verðlaunin sem áður alveg jafn skilið en mér fannst þetta hræðileg skömm, að ég hefði fengið einhver verðlaun sem ég átti ekki að fá. Ég þorði ekki að segja nokkrum manni frá þessu og stakk bókinni ofugt í hilluna svo ég þyrfti ekki að horfa á titilinn og skammast mín. Hins vegar var ég svo heppin að systir mín átti líka þessa bók, þannig að ég gat lesið það eintak, það var allt í lagi:) Núna er ég hins vegar mjög stolt af þessu, alveg sama hvort ég varð í 2. eða 3. sæti.
2. Mér finnst gott að borða jógúrt og brauð saman. Fá mér skeið af jógúrt og bita af brauði til skiptis.
3. Ég var sextán og hálfs þegar ég kyssti strák í fyrsta skipti.
4. Lægsta einkunn sem ég hef fengið er -2.5 í stafsetningu í MR.
5. Mér finnst rosalega gaman að reyta arfa ef hann er mjög stór og mikill. Get eiginlega ekki gengið fram hjá svoleiðis blómabeðum án þess að leggjast á hnén og byrja að reyta. Hins vegar er mér mjög illa við lítinn og fíngerðan arfa. Auk þess er ég fróð um mismunandi tegundir af illgresi og hvernig er best að uppræta þær.
Þar hafiði það. Ása, Aubba, Alma, Þóra og Gebbið. Klukk. Ég náðikkur. Gjörsvovel.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli