fimmtudagur, október 20, 2005

401.færsla. útskriftarwaves

Nú eins og svo oft áður er EVERYTHING HAPPENING um þessa helgi. Airwaves og hvorki meira né minna en HÁSKÓLAGRÁÐÁ er hið mikilvægasta. Svo eru smærri atburðir eins og 50 ára afmæli júróvisjón, þar sem engin önnur en besta júróvinkona mín verður í dómnefnd fyrir íslandshönd (ef televótið bregst(var etta nokkuð leyndó??)), vínsyndaferð og boð í aðrar útskriftarveislur. Svoleiðis að... þetta kemst bara ekki allt fyrir um eina helgi. Þannig að ég hef ákveðið að láta mína eigin útskrift og airwaves ganga fyrir.

Einu mistökin voru að hafa gylt þema í útskriftarfötunum þegar airwaves armbandið er silfrað. Hm. Er samt fengnust því að armbandið skuli ekki vera neongrænt. Finnst eins og það hefði verið smá antiklímax að standa uppi á sviði og taka við skírteini úr hendi háskólarektors, allur uppdubbaður og fínn með endurskinslitað plastarmband. Svoleiðis að silfur er bara málið.

Engin ummæli: