404.færsla.
Ég er ástfangin. Nei, ekki af kúl trommuleikara í þetta skipti. Heldur af lagi númer 16 á disknum sem Ása gaf mér. Veit ekki hvorki hvað lagið heitir né með hverjum það er en ég elska elska elska það.
Annars þoli ég ekki miller tónleika auglýsinguna. "Ímyndaðu þig á...." GOD. Það er ekki hægt að ímynda E-Ð, það er bara hægt að ímynda SÉR E-Ð!!! Langar alltaf að skjóta útvarpið þegar ég heyri þessa auglýsingu.
Langaði bara að koma þessu á framfæri.
Takk.
P.S.
Á í svakalegri sálarangist. Get ekki ákveðið um hvað ég á að fjalla í lokaverkefninu í hljóðkerfisfræði. Haha. Mér líður alltaf eins og ég sé fimm ára í þessum tímum. Eins og ég sé svona lítil stelpa sem viti ekki neitt og eigi ekki heima þarna af því að ég er greinilega yngst. Segi voða lítið en alltaf þegar ég segi eitthvað er það ótrúlega kjánalegt. Dojses hvað mig langar í ferðalög til útlanda. Eða eitthvað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli