405.færsla. spænskaveikin
Ég er eitthvað hálfsorgmædd í dag. Held það sé vegna þess mig dreymdi í nótt að ég væri að fara í frí til Spánar. Ætlaði að byrja á því að liggja á ströndinni í tvær vikur í leti og taka svo rútu til Madridar og Salamanca. Þess vegna varð ég náttúrulega mjög sorgmædd þegar ég vaknaði og áttaði mig á því að þetta var bara draumur.
En annars getur maður ekki verið mjög sorgmæddur í dag! Það er fyrsti! Jibbí, peningur. Þurfti tvisvar að fá hækkun á yfirdrættinum í síðasta mánuði en tókst samt að fara yfir á reikningnum. Gott að fá smá pening aftur. Djamm um helgina? JÁ!
Sá Antonio Banderas í Jay Leno í gær. Haha. Hann var með buxurnar girtar upp undir handakrika. Eitthvað farið að minnka hot-leikinn hjá honum. Hann talar samt ennþá með spænskum hreim "all around Espain". Haha. God. Verð að losna við spænsku veikina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli